Unglinga CrossFit

UnglingaCrossFit er frábær leið fyrir krakka á þessum aldrinum 12-15 ára til að byggja upp styrk, þol og sjálfstraust á öruggan og markvissan hátt.

Styrkur, Úthald, Hreyfing, Þol, Lyftingar, Hreysti

Um Unglinga CrossFit

Við leggjum áherslu á að mæta hverjum og einum þar sem hann er staddur og að æfingarnar henti bæði byrjendum og þeim sem hafa meiri reynslu.

Á æfingum kennum við rétta tækni í styrktar- og þolæfingum, byggjum upp líkamsvitund og öryggi í hreyfingu, búum til jákvætt, hvetjandi umhverfi þar sem allir geta náð árangri og hvetjum til heilbrigðs lífsstíls og góðra venja

Markviss þjálfun þar sem unglingarnir fá áskoranir við sitt hæfi, sjá árangur og finna styrkinn aukast með hverri viku.

Algengar spurningar

Alls ekki! Þú þarft ekki að vera í góðu formi til að byrja í CrossFit - það er einmitt það sem við hjálpum þér að byggja upp!

Allar æfingar er hægt að aðlaga að getu og reynslu hvers og eins. Þjálfararnir okkar leiðbeina þér, hjálpa þér að finna rétta erfiðleikastigið og sjá til þess að þú getir æft á þínum hraða.

Það eina sem þú þarft að gera er að taka fyrsta skrefið - við hjálpum þér með restina!

Flestir byrja á grunnnámskeiði þar sem farið er yfir helstu hreyfingar CrossFit og grunnatriði í tækni. Engin fyrri reynsla er nauðsynleg og allir geta byrjað, óháð aldri eða líkamlegu formi.

Ef þú hefur áður stundað CrossFit eða hefur reynslu af sambærilegri þjálfun geturðu bókað þig í prufutíma og tekið stöðutékk með þjálfara.

Sendu okkur póst: cfr@cfr.is

Við mælum með grunnnámskeiði fyrir alla sem eru að byrja í CrossFit. Þar lærir þú helstu hreyfingar, rétta tækni og færð góðan grunn áður en þú byrjar í almennum tímum.

Ef þú hefur áður stundað CrossFit eða hefur góða reynslu af sambærilegri þjálfun geturðu komið í prufutíma og stöðutékk hjá þjálfara.

Sendu okkur póst: cfr@cfr.is

Það er einfalt að byrja í HYROX hjá okkur og þú þarft ekki að fara á grunnnámskeið.

HYROX hentar öllum, óháð fyrri reynslu eða líkamlegu formi.

Æfingarnar eru fjölbreyttar og hægt er að aðlaga þær að getu hvers og eins. Þjálfararnir okkar leiðbeina þér og hjálpa þér að finna þinn takt.

Þú getur því einfaldlega skráð þig í HYROX-tíma og byrjað!

Verð fyrir kort og námskeið má finna í vefverslun okkar HÉR

Það eina sem þú þarft að taka með þér eru þægileg íþróttaföt, innanhússkór og vatnsbrúsi.

Við mælum líka með að taka með handklæði, sérstaklega ef þú ætlar að nýta þér sturtuaðstöðuna eða slaka á í spa-inu eftir æfingu.

Já, að sjálfsögðu! Þú ert velkomin(n) að koma og prófa tíma hjá okkur þér að kostnaðarlausu.

Hafðu samband við okkur og við hjálpum þér að finna prufutíma sem hentar þér. Þannig geturðu kynnst aðstöðunni, þjálfurunum og stemningunni áður en þú ákveður að skrá þig.

Sendu okkur póst: cfr@cfr.is

Ef þú ert með reynslu af CrossFit geturðu keypt stakan tíma og mætt í opinn tíma.

Eitthvað óljóst?Hafa samband

Tilbúin/n að byrja?

Hvort sem þú ert að stíga þín fyrstu skref eða leita að næstu áskorun, þá hjálpum við þér að finna réttu leiðina hjá CFR.