
Besti tími dagsins
CrossFit, HYROX, Ólympískar lyftingar, Mömmu CrossFit, Eðal CrossFit




Sterkari. Hraustari. Saman.
CrossFit Reykjavík er fyrir fólk sem vill hreyfa sig, auka styrk, bæta þol og almenn lífsgæði. Fjölbreyttar æfingar, góð þjálfun og frábært samfélag þar sem allir geta fundið sinn stað.
Námskeið og tímar.
Frá CrossFit og HYROX yfir í Ólympískar lyftingar og sérhæfðari tíma. Mismunandi leiðir, sama markmið - að hreyfa sig, verða sterkari og líða betur.
CrossFit Reykjavík er meira en bara æfingastöð - hér er öflugt samfélag þar sem fólk á öllum aldri og með ólík markmið kemur saman. Við leggjum áherslu á góða stemningu, hvatningu og samheldni. Hér styðjum við hvert annað, fögnum framförum saman og myndum vináttubönd sem ná langt út fyrir æfingasalinn. Vertu með í samfélaginu okkar!
CrossFit Reykjavík er í rúmlega 1.800 fm húsnæði að Faxafeni 12, miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu. Hjá okkur er rúmgóð og vel búin æfingaaðstaða fyrir fjölbreytta þjálfun, hvort sem markmiðið er að byggja upp styrk, bæta úthald eða undirbúa sig fyrir keppni. Æfingaaðstaða: Æfingasalurinn skiptist í fimm WOD-svæði og sérstakt svæði fyrir ólympískar lyftingar með rekkum fyrir hnébeygjur og pressur. Í salnum eru 16 hnébeygjurekkar, keppnisbekkur fyrir kraftlyftingar, yfir 120 ólympískar lyftingastangir og tugir tonna af lóðum. Fjölbreyttur búnaður er til staðar fyrir bæði hóptíma og einstaklingsæfingar. HYROX-aðstaða: Hjá CFR er frábær aðstaða fyrir HYROX-þjálfun, hvort sem þú ert að stíga þín fyrstu skref eða undirbúa þig fyrir keppni. Við erum með 10 keppnis sleða og allan nauðsynlegan búnað fyrir HYROX, sem gerir iðkendum kleift að æfa allar keppnisgreinarnar og taka heila HYROX braut við góðar aðstæður. SPA og slökun: Í búningsaðstöðunni eru rúmgóðir búningsklefar með samtals sjö sturtum. Þar er einnig SPA-svæði með heitum potti (um 41°C), köldum potti (um 9°C) og 15 manna saunaklefa. Aðgangur að SPA er innifalinn í aðild að CFR. Teygjur og endurheimt: Sérstakt teygju- og hreyfanleikasvæði er búið fjölbreyttum búnaði fyrir liðleika- og hreyfanleikaæfingar. Móttaka og þjónusta: Í móttökunni er verslun með æfingafatnað og Boozt Bar þar sem hægt er að fá sér hressingu fyrir eða eftir æfingu. Hjá CFR finnur þú allt á einum stað - fyrsta flokks æfingaaðstöðu, fjölbreyttan búnað og góða aðstöðu til endurheimtar.
Hjá CrossFit Reykjavík starfar öflugt þjálfarateymi með áralanga og fjölbreytta reynslu úr CrossFit, HYROX, kraftlyftingum og ólympískum lyftingum, bæði á keppnis- og þjálfarastigi. Þessi breiða þekking gerir okkur kleift að mæta ólíkum markmiðum iðkenda, hvort sem þau snúast um að byggja upp styrk, bæta úthald, ná betri tökum á tækni, undirbúa sig fyrir keppni eða einfaldlega bæta heilsu og líðan. Hvert sem markmiðið þitt er, þá erum við hér til að hjálpa þér að ná því.
- Barnagæsla
Hjá CrossFit Reykjavík bjóðum við upp á gjaldfrjálsa barnagæslu fyrir alla meðlimi svo foreldrarnir geti tekið æfingu á meðan börnin leika sér. Barnagæslan er opin: Mánudaga–fimmtudaga: 16:00-19:00 Föstudaga: 15:30-18:00 Laugardaga: 09:00-12:00 Sunnudaga: 10:00-12:00 Athugið að börn eru ávallt á ábyrgð foreldra sinna, einnig á þeim tímum sem starfsmaður er í barnagæslunni.
Algengar spurningar
Alls ekki! Þú þarft ekki að vera í góðu formi til að byrja í CrossFit - það er einmitt það sem við hjálpum þér að byggja upp!
Allar æfingar er hægt að aðlaga að getu og reynslu hvers og eins. Þjálfararnir okkar leiðbeina þér, hjálpa þér að finna rétta erfiðleikastigið og sjá til þess að þú getir æft á þínum hraða.
Það eina sem þú þarft að gera er að taka fyrsta skrefið - við hjálpum þér með restina!
Flestir byrja á grunnnámskeiði þar sem farið er yfir helstu hreyfingar CrossFit og grunnatriði í tækni. Engin fyrri reynsla er nauðsynleg og allir geta byrjað, óháð aldri eða líkamlegu formi.
Ef þú hefur áður stundað CrossFit eða hefur reynslu af sambærilegri þjálfun geturðu bókað þig í prufutíma og tekið stöðutékk með þjálfara.
Sendu okkur póst: cfr@cfr.is
Við mælum með grunnnámskeiði fyrir alla sem eru að byrja í CrossFit. Þar lærir þú helstu hreyfingar, rétta tækni og færð góðan grunn áður en þú byrjar í almennum tímum.
Ef þú hefur áður stundað CrossFit eða hefur góða reynslu af sambærilegri þjálfun geturðu komið í prufutíma og stöðutékk hjá þjálfara.
Sendu okkur póst: cfr@cfr.is
Það er einfalt að byrja í HYROX hjá okkur og þú þarft ekki að fara á grunnnámskeið.
HYROX hentar öllum, óháð fyrri reynslu eða líkamlegu formi.
Æfingarnar eru fjölbreyttar og hægt er að aðlaga þær að getu hvers og eins. Þjálfararnir okkar leiðbeina þér og hjálpa þér að finna þinn takt.
Þú getur því einfaldlega skráð þig í HYROX-tíma og byrjað!
Verð fyrir kort og námskeið má finna í vefverslun okkar HÉR
Það eina sem þú þarft að taka með þér eru þægileg íþróttaföt, innanhússkór og vatnsbrúsi.
Við mælum líka með að taka með handklæði, sérstaklega ef þú ætlar að nýta þér sturtuaðstöðuna eða slaka á í spa-inu eftir æfingu.
Já, að sjálfsögðu! Þú ert velkomin(n) að koma og prófa tíma hjá okkur þér að kostnaðarlausu.
Hafðu samband við okkur og við hjálpum þér að finna prufutíma sem hentar þér. Þannig geturðu kynnst aðstöðunni, þjálfurunum og stemningunni áður en þú ákveður að skrá þig.
Sendu okkur póst: cfr@cfr.is
Ef þú ert með reynslu af CrossFit geturðu keypt stakan tíma og mætt í opinn tíma.
RX Performance hjá CFR.
CrossFit Reykjavík er sölu og umboðsaðili RX Performance. Úrval af vörum og búnaði frá RX Performance fæst í stöðinni.



RX Performance
Framundan hjá CFR
Keppnir, námskeið og viðburðir sem færa samfélagið saman, innan sem utan stöðvarinnar.
Lyftingar
Olympic Weightlifting Workshop
Tækni, styrkur og praktísk leiðsögn í snörun og jafnhendingu með þjálfurum CFR.
HYROX
Hyrox 60% braut
Æfing dagsins verður 60% HYROX braut sem undirbúningur fyrir flotta fólkið okkar sem er að fara að keppa í HYROX Stokkhólm.
CrossFit / HYROX
JólaThrowdown
Innanfélags mót/æfing þar sem þátttakendur reyna fyrir sér í braut sem inniheldur styrktarhluta, þrekhluta og Metcon. Tvö getustig og allir geta verið með! Nánari upplýsingar á FB hóp Club CFR og Abler.
Allir
Nýjarspílumót og Partý
Nýjárpílumót og Partý verður haldið á Bullseye þann 16. janúar. 2 saman í liði og spilað verður 301 og skráning verður inná FB hóp ClubCFR og Abler.

Tilbúin/n að byrja?
Hvort sem þú ert að stíga þín fyrstu skref eða leita að næstu áskorun, þá hjálpum við þér að finna réttu leiðina hjá CFR.















