Hvernig byrja ég?

Hvernig byrja ég í CrossFit?

Grunn- og endurkomunámskeið eru haldin reglulega í CrossFit Reykjavík þar sem þjálfari leiðir iðkendur í gegnum innganginn að CrossFit og hjálpar þeim af stað inn í opna tíma hjá okkur.

Þeir sem hafa stundað samskonar hreyfingu og/eða hafa góðan grunn í íþróttum gætu komið í prufutíma og í framhaldið af því, í samráði við þjálfara, ákveðið hvort þörf sé á grunnnámskeiði.

Ef þú vilt prufa tíma hjá okkur eða fá frekari upplýsingar getur þú sent póst á cfr@cfr.is.

Hvernig byrja ég í Hyrox?

Ekki er krafa á grunnnámskeið eða fyrri reynslu af Hyrox eða í sambærilegum íþróttum til að hefja iðkun í Hyrox í CrossFit Reykjavík.

Kennari tímans leiðir þig í gegnum æfinguna og hreyfingar tímans innihalda mest vinnslu á þrektækjum í bland við hreyfingar með eigin líkamsþyngd, ketilbjöllur og handlóð. Því er Hyrox mjög aðgengilegt fyrir alla.

Ef þú vilt prufa tíma hjá okkur eða fá frekari upplýsingar getur þú sent póst á cfr@cfr.is.

Tilbúin/n að byrja?

Hvort sem þú ert að stíga þín fyrstu skref eða leita að næstu áskorun, þá hjálpum við þér að finna réttu leiðina hjá CFR.