
CrossFit
CrossFit er fjölbreytt þjálfunaraðferð sem sameinar styrk, þol, fimleika og ólíkar hreyfingar til að bæta almenna líkamlega getu.
Styrkur, Úthald, Hreyfing, Þol, Lyftingar, Hreysti
Hvað er CrossFit?
CrossFit er fjölbreytt þjálfunaraðferð sem sameinar styrk, þol, fimleika og ólíkar hreyfingar til að bæta almenna líkamlega getu.
Engar tvær æfingar eru eins!
Við lyftum lóðum, vinnum á þrektækjum, gerum sprengiæfingar og vinnum með eigin líkamsþyngd. Markmiðið er að byggja upp sterkari, hraustari og úthaldsbetri líkama sem nýtist okkur bæði í ræktinni og daglegu lífi.
Hjá CrossFit Reykjavík leggjum við áherslu á góða þjálfun, jákvætt andrúmsloft og sterka liðsheild. Hér æfum við saman, hvetjum hvert annað áfram og fögnum framförunum - stórum sem smáum.




Fyrir hverja er CrossFit?
Það besta við CrossFit er að allir geta verið með!
Hvort sem þú ert að stíga þín fyrstu skref í líkamsrækt eða hefur æft í mörg ár, þá er hægt að aðlaga allar æfingar að þinni getu, reynslu og/eða markmiðum.



Hvernig byrja ég?
Það fer eftir reynslunni þinni.
Ef þú ert að byrja frá grunni eða koma aftur eftir hlé eru grunn- og endurkomunámskeið haldin reglulega hjá CrossFit Reykjavík. Þar leiðir þjálfari þig í gegnum grunnatriðin og hjálpar þér að komast af stað inn í opna tíma.
Ef þú hefur reynslu af sambærilegri þjálfun eða góðan grunn úr íþróttum geturðu komið í prufutíma. Í framhaldinu metum við saman hvort grunn- og endurkomunámskeið hentar þér eða hvort þú getur hafið ástund strax.
Finndu tímann sem hentar þér
CrossFit Reykjavík býður upp á mismunandi tíma fyrir ólíkan aldur, reynslu og markmið. Grunnurinn er sá sami, en áherslur og uppbygging tímanna eru aðlöguð að hverjum hópi.
Algengar spurningar
Alls ekki! Þú þarft ekki að vera í góðu formi til að byrja í CrossFit - það er einmitt það sem við hjálpum þér að byggja upp!
Allar æfingar er hægt að aðlaga að getu og reynslu hvers og eins. Þjálfararnir okkar leiðbeina þér, hjálpa þér að finna rétta erfiðleikastigið og sjá til þess að þú getir æft á þínum hraða.
Það eina sem þú þarft að gera er að taka fyrsta skrefið - við hjálpum þér með restina!
Flestir byrja á grunnnámskeiði þar sem farið er yfir helstu hreyfingar CrossFit og grunnatriði í tækni. Engin fyrri reynsla er nauðsynleg og allir geta byrjað, óháð aldri eða líkamlegu formi.
Ef þú hefur áður stundað CrossFit eða hefur reynslu af sambærilegri þjálfun geturðu bókað þig í prufutíma og tekið stöðutékk með þjálfara.
Sendu okkur póst: cfr@cfr.is
Við mælum með grunnnámskeiði fyrir alla sem eru að byrja í CrossFit. Þar lærir þú helstu hreyfingar, rétta tækni og færð góðan grunn áður en þú byrjar í almennum tímum.
Ef þú hefur áður stundað CrossFit eða hefur góða reynslu af sambærilegri þjálfun geturðu komið í prufutíma og stöðutékk hjá þjálfara.
Sendu okkur póst: cfr@cfr.is
Það er einfalt að byrja í HYROX hjá okkur og þú þarft ekki að fara á grunnnámskeið.
HYROX hentar öllum, óháð fyrri reynslu eða líkamlegu formi.
Æfingarnar eru fjölbreyttar og hægt er að aðlaga þær að getu hvers og eins. Þjálfararnir okkar leiðbeina þér og hjálpa þér að finna þinn takt.
Þú getur því einfaldlega skráð þig í HYROX-tíma og byrjað!
Verð fyrir kort og námskeið má finna í vefverslun okkar HÉR
Það eina sem þú þarft að taka með þér eru þægileg íþróttaföt, innanhússkór og vatnsbrúsi.
Við mælum líka með að taka með handklæði, sérstaklega ef þú ætlar að nýta þér sturtuaðstöðuna eða slaka á í spa-inu eftir æfingu.
Já, að sjálfsögðu! Þú ert velkomin(n) að koma og prófa tíma hjá okkur þér að kostnaðarlausu.
Hafðu samband við okkur og við hjálpum þér að finna prufutíma sem hentar þér. Þannig geturðu kynnst aðstöðunni, þjálfurunum og stemningunni áður en þú ákveður að skrá þig.
Sendu okkur póst: cfr@cfr.is
Ef þú ert með reynslu af CrossFit geturðu keypt stakan tíma og mætt í opinn tíma.

Tilbúin/n að byrja?
Hvort sem þú ert að stíga þín fyrstu skref eða leita að næstu áskorun, þá hjálpum við þér að finna réttu leiðina hjá CrossFit Reykjavík.




