
Um okkur
Frá 27 fm bílskúr í eitt stærsta CrossFit samfélag landsins.
CrossFit, HYROX, Ólympískar lyftingar, Mömmu CrossFit, Eðal CrossFit
Um CrossFit Reykjavík
CrossFit Reykjavík var stofnað í lok árs 2009 af Hrönn Svansdóttur og Ívari Ísak Guðjónssyni í 27 fm bílskúr í Mosfellsbæ. Síðan þá hefur orðið bylting í almennri umfjöllun og þekkingu á CrossFit á Íslandi og ötulum iðkendum CrossFit fjölgar stöðugt.
CrossFit Reykjavík opnaði formlega í Skeifunni 8, þann 4. júlí 2010 og fékk þá á sig þá grunnmynd sem unnið var út frá og hefur skilað því kerfi sem við notum í dag. Þá höfðu Hrönn Svansdóttir og Evert Víglundsson sameinað krafta sína. CrossFit Reykjavík fékk strax mjög góðar viðtökur og stöðin var því stækkuð ári seinna. Vorið 2013 var svo gerður samningur um enn betra húsnæði í Faxafeni 12 sem flutt var í í ágúst 2013.
Krakka CrossFit hófst sumarið 2011.
Góður liðsauki barst stöðinni í janúar 2012 þegar Annie Mist, heimsmeistari í CrossFit, bættist í eigendahóp CrossFit Reykjavíkur.
CrossFit Reykjavík leggur metnað sinn í að þú náir árangri í líkamsrækt og með aukinni afkastagetu á öllum sviðum almennrar hreysti öðlast þú orkumeira líf og aukin lífsgæði.
Aðstaðan
Allt sem þú þarft á einum stað.
CrossFit Reykjavík er í um 1.800 fm húsnæði í Faxafeni 12. Þar er fjölbreytt æfingaaðstaða með fimm WOD svæðum, sérsvæði fyrir ólympískar lyftingar, rekkum, teygjusvæði og miklu úrvali af búnaði.
Að auki er SPA með heitum og köldum potti og sauna, sem er innifalið fyrir meðlimi.
Barnagæsla er í boði síðdegis á virkum dögum og um helgar, sem gerir foreldrum auðveldara að koma æfingu inn í daginn.



Hafa samband
Ertu með spurningu um æfingar, námskeið, aðild eða starfsemina hjá CrossFit Reykjavík? Hafðu samband eða kíktu við hjá okkur og við aðstoðum þig með það sem þú þarft.
- Hringdu í okkur
- 561 9900
- Sendu okkur póst
- cfr@cfr.is
- Kíktu í heimsókn
- Faxafen 12, 108 Reykjavík
Algengar spurningar
Alls ekki! Þú þarft ekki að vera í góðu formi til að byrja í CrossFit - það er einmitt það sem við hjálpum þér að byggja upp!
Allar æfingar er hægt að aðlaga að getu og reynslu hvers og eins. Þjálfararnir okkar leiðbeina þér, hjálpa þér að finna rétta erfiðleikastigið og sjá til þess að þú getir æft á þínum hraða.
Það eina sem þú þarft að gera er að taka fyrsta skrefið - við hjálpum þér með restina!
Flestir byrja á grunnnámskeiði þar sem farið er yfir helstu hreyfingar CrossFit og grunnatriði í tækni. Engin fyrri reynsla er nauðsynleg og allir geta byrjað, óháð aldri eða líkamlegu formi.
Ef þú hefur áður stundað CrossFit eða hefur reynslu af sambærilegri þjálfun geturðu bókað þig í prufutíma og tekið stöðutékk með þjálfara.
Sendu okkur póst: cfr@cfr.is
Við mælum með grunnnámskeiði fyrir alla sem eru að byrja í CrossFit. Þar lærir þú helstu hreyfingar, rétta tækni og færð góðan grunn áður en þú byrjar í almennum tímum.
Ef þú hefur áður stundað CrossFit eða hefur góða reynslu af sambærilegri þjálfun geturðu komið í prufutíma og stöðutékk hjá þjálfara.
Sendu okkur póst: cfr@cfr.is
Það er einfalt að byrja í HYROX hjá okkur og þú þarft ekki að fara á grunnnámskeið.
HYROX hentar öllum, óháð fyrri reynslu eða líkamlegu formi.
Æfingarnar eru fjölbreyttar og hægt er að aðlaga þær að getu hvers og eins. Þjálfararnir okkar leiðbeina þér og hjálpa þér að finna þinn takt.
Þú getur því einfaldlega skráð þig í HYROX-tíma og byrjað!
Verð fyrir kort og námskeið má finna í vefverslun okkar HÉR
Það eina sem þú þarft að taka með þér eru þægileg íþróttaföt, innanhússkór og vatnsbrúsi.
Við mælum líka með að taka með handklæði, sérstaklega ef þú ætlar að nýta þér sturtuaðstöðuna eða slaka á í spa-inu eftir æfingu.
Já, að sjálfsögðu! Þú ert velkomin(n) að koma og prófa tíma hjá okkur þér að kostnaðarlausu.
Hafðu samband við okkur og við hjálpum þér að finna prufutíma sem hentar þér. Þannig geturðu kynnst aðstöðunni, þjálfurunum og stemningunni áður en þú ákveður að skrá þig.
Sendu okkur póst: cfr@cfr.is
Ef þú ert með reynslu af CrossFit geturðu keypt stakan tíma og mætt í opinn tíma.

Tilbúin/n að byrja?
Hvort sem þú ert að stíga þín fyrstu skref eða leita að næstu áskorun, þá hjálpum við þér að finna réttu leiðina hjá CFR.